|
Written by Palli Gests
|
|
þriðjudagur, 19 janúar 2010 |
Haldin verða kayaknámskeið eftirtaldar helgar kl 16til 18 báða dagana:13.-14. mars 3.-4. apríl 1.-2. maí 22.-23.maí
Þrenns konar námskeið eru í boði, Byrjandanámskeið, Veltunámskeið og Áratækni framhald. |
|
Read more...
|
|
|
Written by Palli Gests
|
|
þriðjudagur, 16 febrúar 2010 |
|
Aðalfundurinn fór vel og siðsamlega fram á miðvikudaginn var. 25 manns mættir sem er orðin standard mæting á aðalfund. Þarna var hins vegar afar góðmennt og fjörlegar og góðar umræður fóru fram eftir að búið var að fara yfir ársskýrsluna sem má finna hér . Mannabreytingar í stjórn voru þær að Halli Njáls og Sæþór voru sáttir við að hleypa nýju og fersku fólki að og Gísli Karls og Þóra Atladóttir komu inn í stað þeirra. Halla og Sæþóri eru þökkuð fín störf í stjórn og Gísli og Þóra boðin velkomin. Stjórnin öll er talin upp undir "Klúbburinn" - "Stjórn"
Á fundinum var helst rætt um öryggismál eins og komið hefur fram hefur verið á korkinum, unglingastarf klúbbsins í framtíðinni og aðstöðumál. Þessi mál verða öll unnin áfram í þar til bærum nefndum. |
|
|
Written by Palli Gests
|
|
föstudagur, 05 febrúar 2010 |
|
Við minnum á aðalfund Kayakklúbbsins sem verður haldinn á miðvikudaginn í næstu viku, 10. febrúar og hefst hann kl. 20. Hann verður eins og venjulega haldinn í aðstöðu ÍSÍ (sal E), Engjavegi 6 í Laugardalnum. Dagskrá má sjá með því að smella á "Read More"
|
|
Read more...
|
|
|
Written by Palli Gests
|
|
þriðjudagur, 05 janúar 2010 |
|
Íþróttamaður ársins 2009 verður tilnefndur í kvöld í beinni útsendingu í sjónvarpinu kl. 19:40. Fulltrúar okkar kayakfólks verða ekki minni spámenn en Heiða Jónsdóttir og Gísli H. Friðgeirsson.
Heiða stóð sig fantavel meðal kvenna og gerði sér lítið fyrir eins og allir muna og vann íslandsmeistaratitilinn bæði á sjó og í straumi. Gísli braut blað í Kayaksögu Íslands með því að vera fyrstur Íslendinga til að róa kringum landið. Þrátt fyrir að Gísli hafi lítið haft sig frammi á mótum ársins hefur hann sýnt þess heldur meiri harðdrægni, dugnað og hæfileika en nokkur annar kayakmaður á árinu. Í okkar huga snýst kayakíþróttin heldur ekki aðallega um að róa hraðast, heldur ekki síður að þróa með sér hæfileikann til að beita bátnum af öryggi og kunnáttu við allar aðstæður. Heiðu og Gísla er hér með óskað innilega til hamingju með frábæran árangur á árinu. |
|
|
Written by Palli Gests
|
|
miðvikudagur, 23 desember 2009 |
|
Kayakklúbburinn sendir öllu kayakfólki bestu óskir um gleðilega hátíð og þakkar fyrir frábært kayakár 2009.
Starfsemin hefur verið í góðum gangi undanfarið og ekki minnkar mætingin í sundlaugaræfingarnar og félagsróðrana nú með hækkandi sól og lengri dögum. Gamlársróðurinn vinsæli er nú framundan og er stefnan sett á að gera hann sem veglegastan nú í ár. Fylgist með á korkinum hvernig útfærslan verður. |
|
Read more...
|
|
|
Written by Palli Gests
|
|
mánudagur, 07 desember 2009 |
|
Fréttaskot frá Rúnari Pálmasyni:
Tæplega tugur ungliða úr Björgunarsveitinni Kili mætti á sérstaka aðventukayakkynningu hjá klúbbnum í gær, laugardaginn 4. desember. Örlygur Steinn Sigurjónsson og Magnús Sigurjónsson (þeir eru ekki bræður þó þeir séu sláandi líkir) stjórnuðu kynningunni af mikilli röggsemi. |
|
Read more...
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>
|
| Results 1 - 6 of 122 |